Jam hæ
ég
ákvað að reyna að blogga núna, ég hef reyndar ekki bloggað síðan
á afmælisdaginn minn, vá það er reyndar soldið langt síðan og já
ég reyni að muna hvað hefur gerst hjá mér síðan þá..... ég hef
reyndar ekki haldið ennþá almenninlega uppá afmælisdaginn minn
en ég reyni að gera það bráðlega...... svona tvöfalt afmæli hjá
mér og geira
hehe.... það er nú stutt síðan ég fór í afmæli hjá
Sigrúnu sem var 21.árs, það var gaman , ég ætlaði að vera edrú
það kvöld en neibb aldeilis ekki, datt í það eins og maður orðar
það
hehe..... skemmtilegt kvöld og já við skemmtum okkur nú vel
það kvöld..... í þessum mánuði varð líka staffadjamm og það var
haldið heima hjá honum Bjarka háskólagæja og það var magnað stuð
, fórum heim til hans og þar voru nokkrir og fórum svo í bæinn ( hann
var tómur, þá voru allir á fiskideginum á dalvík ) og spiluðum
pool og það var svaka fjörJ
hehe...
Jamjam...... þá er
að segja ykkur fréttirnar að ég lenti á sjúkrahúsinu á
sunnudagskvöldið og þurfti að gista þar eina
nótt.... ég
byrjaði að finna tilfinningaleysi öðrum megin í andlitinu og
ég er víst með bólgur í einhverri taug í andlitinu og það
sést eigilega bara þegar ég brosi og get ekki lokað öðru
auganu almenninlega og þetta á samt allt saman að lagast á
4-6 vikum ....ég veit ekki af hverju ég fékk þetta en þetta
er víst algengt , allavega ekki sjaldgæft.... ég er búin að
vera heima í viku og já ekkert voðalega gaman en góðar
fréttir
mér líður vel og fer að vinna eikkað á
mánudaginnJ
Verslunarmannahelgin var nú ekkert smá skemmtileg, hitti mikið af
skemmtilegu fólki og mikið drukkið, sungið og var bara að vinna
líka heilmikið
hitti bróðir minn sem ég er ekki búin að hitta
lengi lengi og það var ekkert smá gaman og við eigum það
sameigilegt að vera algerir sprellarar.hehe.... jam sumarið er bara
búið að vera skemmtilegt, og er bara ánægt að vera til
langar
samt ekkert smá mikið til að fara vestur og hitta mitt fólk
ég
fékk boð í afmæli í gær hjá henni kötlu vinkonu sem verður haldið á
ísafirði 10.september og vá hvað mig langar að fara...reyni eins og
ég get
ég meina hún er ein af bestu vinkonum mínum sem ég
á.......verð að komast...
Menningarnótt í
reykjarvík var víst haldin um dagin og ég sem var svo búin að plana
að fara suður en því miður varð ekkert úr því ......eg er eigilega
fegin hefði ekkert vilja vera á sjúkrahúsinu fyrir sunnan...en ég
reyni samt að fara suður bráðlega að hitta sprellarana þar...
langar að gera svo margt.....
Ég fer ekki í
skólan í vetur en samt skóla, fer bara í fjárnám í 11 einingar ,
stolt af mér og stefni að fara i háskólan næsta haust, mig langar
svo að fara í sálfræði......kemur í ljós.... svo er menningarnótt hérna
núna en samt ekki eins og fyrir sunnan,,.,hehe... en ég ætla bara í
heimsókn til hennar elfu og vera með stelpunum í kvöld...aðal
genginu í bænum bara.....
Fékk símtal áðan
frá bróður mínum sem er staddur í sviss og ég væri svo til í að
vera þar núna...... en ég stefni á að fara út til útlanda
Jabb ég er nú búin
að blogga eikkað núna þannig að ég segi þetta bara gott í
bili...
Adios og hafið það
gott
híhí